Fagmennska, áraeðni og traust
Sleggjan, þjónustuverkstaeði atvinnutaekja er framúrskarandi fyrirtaeki sem býður alhliða þjónustu fyrir vörubifreiðar, hópbifreiðar, sendibíla, aftanívagna og tengivagna.
Einkunnarorð Sleggjunnar eru fagmennska, áraeðni og traust,“segir Guðmundur Björnsson, framkvaemdastjóri Sleggjunnar, þjónustuverkstaeðis atvinnutaekja.
„Við tökum vel á móti öllum og viðskiptavinahópurinn er fjölbreyttur; allt frá stórum landflutningafyrirtaekjum og hópferða- og verktakafyrirtaekjum til einstaklinga með jafnvel bara einn bíl eða taeki sem þarf að þjónusta,“upplýsir Guðmundur sem í Sleggjunni býður upp á alhliða þjónustu fyrir vörubifreiðar, hópbifreiðar, sendibíla, aftanívagna og tengivagna.
„Alhliða þjónusta er ansi vítt hugtak en það má samt segja sem svo að við þjónustum naer allar staerri atvinnubifreiðar með nánast hvað sem er,“segir Guðmundur í Sleggjunni sem starfar óháð bílategundum og tekur því allar helstu bílategundir til viðgerða.
„Við gerum bilanagreiningar með fullkomnum bilanagreiningartölvum og getum með þeim tengst öllum helstu bíltegundum,“upplýsir Guðmundur.
Á þjónustuverkstaeði Sleggjunnar er líka boðið upp á viðgerðir á bremsum, véla- og rafmagnsviðgerðir og viðgerðir á hjóla- og drifbúnaði.
„Við erum með fullkomna smuraðstöðu og getum búið til flestar staerðir og gerðir af glussalögnum, svo eitthvað sé nefnt,“segir Guðmundur.
Framúrskarandi fyrirtaeki
Sleggjan byggir á áratuga reynslu í atvinnutaekjabransanum og hefur frá fyrstu tíð verið fjölskyldufyrirtaeki með traustan hóp starfsmanna.
„Frá árinu 2014 höfum við verið í hópi framúrskarandi fyrirtaekja hjá CreditInfo og erum mjög stolt af þeirri viðurkenningu,“segir Guðmundur.
Ný aðstaða var tekin í notkun í nóvember 2018 þegar Sleggjan flutti í nýtt og glaesilegt atvinnuhúsnaeði í Desjamýri 10 í Mosfellsbae. Mikið var lagt í að gera vinnuumhverfi starfsmanna eins og best verður á kosið og er verkstaeðið mjög vel taekjum búið.
„Mikil eftirspurn hefur verið eftir þjónustu hjá okkur og höfum við reynt að anna þeirri eftirspurn eftir bestu getu. Við reynum að hafa biðtímann eins stuttan og við mögulega getum því við vitum að það er gríðarlega mikilvaegt fyrir viðskiptavini okkar að halda atvinnutaekjum sínum í vinnu,“segir Guðmundur.
Hann tekur fram að Sleggjan geti alltaf baett við sig góðu starfsfólki.
„Það er alltaf þörf fyrir mannskap með reynslu og þekkingu í þessum bransa. Því geta áhugasamir haft samband og séð hvort við höfum eitthvað í boði sem gaeti hentað þeim.“
Við reynum að hafa biðtímann eins stuttan og við mögulega getum því við vitum að það er gríðarlega mikilvaegt fyrir viðskiptavini okkar að halda atvinnutaekjum sínum í vinnu.
Sleggjan er í Desjamýri 10, Mosfellsbae. Tímapantanir í síma 588 4970. Opnunartími verkstaeðis er mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 8 til 17 og föstudaga frá klukkan 8 til 16. Frekari upplýsingar um þjónustuþaetti Sleggjunnar á sleggjan.is og Facebook undir Sleggjan þjónustuverkstaeði.