Svansvottun fyrir endurbaetur
Reitir hafa hlotið fyrstu Svansvottunina á Norðurlöndum fyrir endurbaetur á húsnaeði. Það voru breytingar á húsnaeði Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut sem hlutu viðurkenninguna.
Húsnaeðið er í eigu Reita og það var Andri Þór Arinbjörnsson, framkvaemdastjóri Reita, sem tók við leyfinu frá Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Þetta er frábaer áfangi sem ég vona að sé bara byrjunin á því sem koma skal almennt í endurbótum á byggingum. Byggingageirinn útheimtir mikinn efnivið og auðlindir og það er mikilvaegt að við förum vel með þaer, endurnýtum það sem við getum og komum öðru í endurvinnslu. Að lágmarka áhrif framkvaemda á umhverfi og heilsu er baeði gott fyrir okkur og náttúruna í heild,“sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson við þetta taekifaeri.
„Við erum afar stolt af þessu og tökum hlutverk okkar sem fyrirmynd mjög alvarlega. Þetta er fordaemisgefandi og sýnir að þetta er haegt. Það var okkur mikilvaegt að nýta það sem haegt var að nýta áfram og að hugsað sé um umhverfið og heilsu starfsfólks við val á nýju byggingarefni og innanstokksmunum,“sagði Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar.
„Svansvottun húsnaeðis
Umhverfisstofnunar er merkur áfangi. Vottunin er til marks um metnað til að beita sér fyrir umbótum í umhverfismálum þegar kemur að byggingum. Reitir óska Umhverfisstofnun til hamingju með endurnýjað húsnaeði og þakka fyrir gott samstarf um þetta samvinnuverkefni Reita og Umhverfisstofnunar,“sagði Andri Þór Arinbjörnsson, framkvaemdastjóri eignaumsýslusviðs hjá Reitum fasteignafélagi.
Hönnun og ráðgjöf vegna endurbótanna var í höndum THG arkitekta. Viðmið Svansins fyrir endurbaetur eru umfangsmikil, þar sem markmiðið er að lágmarka áhrif framkvaemda á umhverfi og heilsu. Svansvottunin tryggir gaeði byggingarinnar meðal annars með betri innivist, sem er tryggð með ströngum kröfum á efnainnihald byggingavara. Í Svansvottun er einnig lögð áhersla á endurnotkun byggingarefna og að úrgangur fari í endurvinnslufarveg.
Endurbaeturnar og aðrar Svansvottaðar framkvaemdir hafa haft jákvaeð áhrif á íslenska birgja, þar sem úrval af vottuðum og samþykktum byggingarefni hefur aukist sýnilega síðustu ár. Sem daemi um árangur sem náðist í framkvaemdunum við Suðurlandsbraut 24 má nefna:
Flokkunarhlutfall byggingarúrgangs var 94,4% á framkvaemdatíma.
Áaetlað er að notkun loftraestikerfis með hitaendurvinnslu muni draga úr orkunotkun um 40%.
Öll málning og sparsl sem var notað var umhverfisvottað. Álrimlar, korkflísar og fleiri byggingarhlutir voru notaðir áfram.
Veglegt barnaherbergi var sett upp til að baeta aðstöðu starfsmanna.